Danskar krúslur
Klukkan
13.08.2008 11:46:51 / Sigrún

Skólafólk

Já það kom að því, tíminn líður sko sannarlega hratt. Nú eru allir fjölskyldu meðlimirnar komnir í skóla.
Já litli prinsinn okkar er byrjaður í skólanum eða rétt er sagt byrjaður í dúsnum, sem er eftirskólinn  hjá strákunum og hann er að fíla það í botn. Reyndar er hann bara búin að vera í þrjá daga en umhverfið er ekki alveg nýt fyrir hann þar sem hann er oft og mörgum sinnum búin að að ná í stóra bróðir sinn. Í gær fór hann á hestbak og var að fljúga flugdreka og fannst það rosa mikið stuð, svo getur hann spilað endalaust mikið því það eru svo mörg spil í dúsnum, starfsfólkið hefur líka tekið honum rosa vel, eins og búast mátti við líka haha, en þau eru öll yndisleg þarna.
Svo var fyrsti skóladagur hjá hjá Hilmi í morgun og sá var þreyttur, hann er búin að vera að leika einhvern voða erfiðan ungling upp á síðkastið og verið eitt erfiðasta barn sem ég hef nokkurn tíman augum litið. Kristín sys sem er í heimsókn hjá okkur er alveg hissa og þekkir ekki Hilmir sinn. Gaurinn vaknaði rúmlega sjö í morgun og var mjög þreyttur enda fór hann loksins að sofa í gær kl 10. Veit ekki hvað er með prinsinn en hann er í einhverju mótþróakasti og vill ráða öllu, hlýðir ekki neinu og gerir foreldra sína mjööööög pirraða. En vonandi er þetta eitthvað þroskastig sem drengurinn er að komast í gegnum og gengur yfir.

Já sumarið er liðið, ég skrifaði síðast þegar það var að byrja, kemst ekki yfir það hvað tíminn líður hratt. Berlínar ferðin var ÆÐI, ég er búin að vera að vinna síðan skólinn kláraðist og fer í verknám núna í byrjun sept, öll önninn fer í verknám og verður vonanandi bara spennandi. Elli byrjar í masternum núna í haust, Himir í 3 bekk og Eiður í 0 bekk, flott familia ikkkkke.:haha: Sem sagt tvö ár eftir, styttist í að þessu ævintýri okkar lýkur, verður spennandi að sjá hvað tekur við :d

» 1 hafa sagt sína skoðun

29.05.2008 08:58:57 / Sigrún

Tiden

Tíminn líður heldur betur hratt

Próftiðin er hafin, allt á fullu hjá okkur. Elli ver bachelor verkefnið sitt á morgun, spennandi að sjá. Ég fer í lyfjafræði próf á föstudaginn efti viku.

Elli fer til Japans á mánudaginn í þrjár vikur

Tvíburanir koma á laugardaginn eftir viku

Viðar og Inga farin að pakka á fullu, hlakka mikið til að fá þau nær mér, hafa familiu til að kíkja í heimsókn til, gaman gaman, og þau hingað í heimsókn.

Allt að gerast, verð að vinna á 9 öst í sumar, þar sem ég hef verið undanfarin sumur, very næs. Svo er bara að bíða eftir Berlínar ferðinni yndislegu í sumar, komast í frí

Adjö, þangað til seinna, örugglega mikið seinna þar sem ég er einstaklega löt við þessar heimasíður okkar. Beklager :$ en hef öðrum hnöppum að hneppa :lol:


» 2 hafa sagt sína skoðun

30.03.2008 20:23:12 / Sigrún

Sommertid

Komin sumartími hjá okkur hér í Dk
 
Mæli með að þið farið að undirbúa ykkur fyrir sumarið og dillið ykkur aðeins.

Þessi er æði og ef hún kemur ykkur ekki til að hrista upp í mjöðmunum, þá veit ég ekki hvað gerir 8|

http://www.youtube.com/watch?v=KE2orthS3TQ

» 0 hafa sagt sína skoðun

28.03.2008 09:02:27 / Sigrún

Yndisleg börn

Get ekki annað sagt en að börnin mín eru yndisleg og tillitsöm :) Gæjarnir hafa tvisvar verið veikir síðan í febrúar, eftir að ný önn byrjaði og í bæði skiptin hef ég átt frí. Þægilegt ;)

» 0 hafa sagt sína skoðun

07.03.2008 16:57:45 / Sigrún

Rennandi rigning

Ææææ ég nenni ekki út í þetta rok og þessa rennandi rigningu :lol::lol::lol::lol::lol: Eiður á leið í leikskólann í morgun



God weekend

» 2 hafa sagt sína skoðun

16.02.2008 23:13:18 / Sigrún

Kannski er þetta sprengja

Það er víst engin takmörk fyrir ímyndunarafli fimm ára drengs :$

Þegar prinsarnir voru að fara að lúlla sér í aften, sá Hilmir Atli blikkandi ljós út í tjörninni í "bakgarðinum" okkar, sem vakti þvílika athygli.

Þar með fóru miklar pælingar í gang hjá þeim bræðrum hvað í lifandis ósköpunum þetta gæti verið. Hilmir sagði svo sem ekki mikið en datt i hug að þetta gæti verið ljós á hjóli en það fyrsta sem Eiði Orra datt í hug og ældi út úr sér var að "kannski er þetta sprengja" :$ hmmmmmmm hvad skal man sige.

Eftir smá umhugsun fannst þeim sniðugast að láta athuga þetta og sendu pabba sinn út, en mamma varð að vera inni að passa prinsana sína, það var sterklega tekið fram :lol:.
Eftir mikinn spenning í þessar tvær mínútur sem pabbi var úti og kom inn, þá kom nú í ljós að þetta var bara ljós sem var af hjóli og blikkaði enn, en það verður gerð smá rannsókn af þessu á morgun, get sko lofað ykkur því.

Svona var maður víst ekki fyrir svo löngu
Eiður 22 mán.

Fortsæt god weekend til jer alle :haha:


» 1 hafa sagt sína skoðun

08.02.2008 16:35:46 / Sigrún

Spurningar dagsins

Það er náttla bara skemmtilegar spurningar sem hrökkva upp úr 5 ára krökkum. Fékk þessar spurningar í dag.

Afhverju geta hænur ekki flogið og geta kallar ekki fengið börn í magann sinn. :$Hef nú ekki svör við fyrri spurningunni. En hann er bara yndislegur þessi litli prins minn alltaf að pæla í engu og öllu:haha:

Góða helgi elsku vinir 


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.02.2008 15:19:31 / Sigrún

Eigth is the number

Ekki það að þessi tala sé mín lukkutala, átta er bara okkar tala.

Hilmir frumburðurinn er fæddur þann áttunda, Elli á afmæli þann 18, ég og Elli eigum kærustu afmæli þann 18 febrúar, eigum sem sagt 11 ára afmæli núna í mánuðunum ;)geggjað. Eiður Orri er fæddur þann 28, og jú eitt í viðbót, Hilmir er skírður þann 18. Vantar ekki átturnar í þetta.

Hefði verið flott ef við hefðum gift okkur :klikk:  8, 18, eða 28 júlí, en það lenti víst ekki á laugardegi, ekki það að við vorum að sækjast neitt eftir því þessir dagar hafa bara valist af sjálfu sér.

En jæja þá að öðrúm áttum, eins og flestir vita fór bæði talvan og bíllinn í viðgerð í janúar mánuði, bíllinn er nýkomin til baka og kostaði 8 þúsund :$, tölvuna fékk svo til baka þann 28 jan og hefði hún ekki verið í ábyrgð hefði hún kostað 8.165 kr.

Skemmtilegt.

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

17.12.2007 20:12:31 / Sigrún

Með krampa í hendinni

Var að klára ein 20 stk af jólakortum, 8|.

Sendi hvorki meira né minna en 20 stykki til íslands. Vantaði samt helst fleiri, en ég prentaði bara út 20, en það eru nokkrir sem mig langað að senda jólakort, með mynd af prinsunum sem ég sleppti bara þetta árið.
En það er bara sonna, reikna nú hvort eð er ekki að fá kort frá þeim einstaklingum :lol:, ein ljót.

Elli er að klára verkefnið sitt þanngi að ég fæ hann til baka á morgun, hann kom heim um fimm leytið í morgun þessi elska, en það gekk svo vel hjá þeim að þeir týmdu ekki að hætta að vinna. En unnu svo vel að þeir náðu næstum að klára, nú þarf bara að fínpússa og ætla svo að prenta allt út á morgun, bara great ;) að enduheimta manninn sinn aftur, mmmmmmm :haha:.

Gæjarnir eru í góðum gír, eru orðnir spenntir að komast í jólafrí og vera í stíl við mömmu sína eða kannski frekar vera heima með Símoni, hundinum sem við erum að passa yfir jólin:$, veit ekki hvort okkar er skemmtilegra, en reikna með að það sé ég :lol:, rigth.

En jæja hendin alveg búin á því eftir korta skrifin, var svo bíssí við þetta að ég steingleymd að fá mér rauðvíns glas með þessu, össsss.

God nat og sov godt

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

13.12.2007 16:15:33 / Sigrún

13 Desember

Þrettándi desember, ótrúlegt að þessi dagur sé komin aftur. Hjá flestum er hann svo sem ekkert merkilegur, bara einn annar dagur nær jólum.

En hjá okkur, í okkar fjölskyldu er þetta merkisdagur, því fyrir ári síðan fæddist lítill prins, ójá hann var sko lítill, eiginlega er lítill ekki rétta orðið því hann var agnarsmár. Ekki nema 585 gr, man nú ekki alveg lengdina en man grömmin á lilta prinsinum.

Öll familian stóð agndofa þegar þessi agnarsmái prins var tekin með keisara, og spurningarnar sem flugu í höfðinu á okkur öllum og hræðslan. Lifir hann fæðinguna af, verður í lagi með hann, verður hann alltaf lasin, fatlaður, þroskaheftur ómæ? Eða verður hann einn af þeim heppnu sem lifa og verða að fullkomlega heilbrigðum, flottum einstaklingum.

Held að hugurinn hafi sjaldan verið eins mikið hjá stóra bró og Ingu mágkonu þetta árið og sérstaklega síðustu jól þar sem fótunum var gjörsamlega kippt undan þeim. Maður fann það á þessum tíma hversu erfitt það var að vera í burtu frá þeim sem maður þykir vænt um og geta ekki knúsað þau og hjálpað, en sem betur fer eiga þau bæði góða fjölskyldu og heilan flokk af góðum vinum sem hafa stutt þau í gegnum þetta ár.

Í dag er litli prinsinn okkar eins árs, mig minnir að hann hafi farið heim til sín í mars á þessu ári, að þeim tíma lá á hann á vökudeild undir vökullu augu góðra starfsfólks þar.

En jú hann er einn af þeim heppnu, hann fullkomlega heilbrigður og með eindæmum flottur strákur, og held svei mér þá að ég hafi ekki séð svona litið barn, sem sjarmar allt og alla í kringum sig með ofboðslega fallegu brosi.;) En hann á náttla ekki langt að sækja sjarmann þar sem forledrarnir eru líka einstaklega sjarmerandi og auðvitað stóri bróðirinn sem loksins fékk lítinn bróður. :haha:

Vildi svo innilega að ég gæti verið með fjölskyldunni í dag og haldið upp á þennan merkisdag með þeim, en ég er hjá ykkur í huganum, eins og ég var fyrir ári síðan.

Elska ykkur og sendi risa knús til ykkar og þúsund kossa


» 1 hafa sagt sína skoðun

05.12.2007 13:25:07 / Sigrún

Vikutal

Hérna úti erum við búin að læra það hvernig árið og allt skipulag er talið í vikum. Núna er t.d. vika 49 og árið í heildina er 52 vikur. Sem sagt 2 og hálfvika eftir af árinu, það er bara ekki svo mikið. :$

Ég náttla skil þetta ekki enn hversu tíminn er ótrúlega fljótur að líða.

 
Þegar við komum hingað út fyrst og sáum allt þetta vikutal, þá horfðum við á fólk og spurðum hvenær í ósköpunum er það svo,8| þegar við Íslendingar teljum í vikum þá er það hversu langt við kellur erum komnar þegar við erum óléttar :lol:. En núna erum við búin að læra þetta og ég alla vega er farin að nota þetta líka og finnst það bara fínt. Alltaf gaman að læra eitthvað nýtt, ikke.;)

 

En jólin eru á næsta leiti, rétt við næsta horn, ég dauðskammast mín að vera ekki búin  með allar jólagjafir og vera búin að senda þær til íslands. Vegna fyrri reynslu ætti ég að vera búin að senda þá, þar sem mínir pakkar hafa verið að fara í tollinn og tollararnir að kíkja á góssið sem ég er að senda til familiunnar. Frekar óheppnir greyin þar sem ég er svo löghlýðin:haha:, finna þeir ekki neitt sem ekki má fara á milli landa. En ég sendi pakkana með hraðsendingu og það ætti nú að nást ef ég redda þessu á föstudaginn og sendi strax eftir helgi.

 

Annars erum við búin að vera bara bíssí bíssí bíssí. Þar sem skólinn er búin að hertaka Ella minn algjörlega sé ég ein um heimilið, skólann og strákana okkar líka. Það þarf að fara á æfingar, helst núna tvisvar í viku þar sem stóri gæjinn fær rauða beltið næstu helgi. Ég er að fara í próf á föstudaginn og er eiginlega ekki að hafa tíma í að skutlast svona.

Þar sem allur tíminn fer í skólann, strákana og æfingar þá fær heimilið að sitja á hakanaum og það algjörlega. Reyndar búin að setja smá skraut upp, gerði krans á útidyra hurðina á sunnudaginn, að sjálfsögðu meðan ég var að elda:lol:, jólastjarnan geðveika er komin upp, held ég sé ástfangin af henni, finnst hún svo flott. Svo náði ég í eina grein út í garð og hennti smá skraut á hana, sem er bara kúl. Nú vantar bara jólatréið, mála á piparkökur og klára að kaupa jólapakka þá er þetta nú bara reddí.

Kannski panta svo ekstra fleiri tíma í sólarhringinn og auka orku frá jólasveininum þá er þetta í fínu lagi.

 

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

10.11.2007 11:31:57 / Sigrún

Jólin jólin

Já hér er allt farið að anga, jólin eru á næsta leyti. Fórum í bæinn í síðustu viku og þar angaði sko allt saman, mmmmm við vorum ekki fyrr komin út úr bílnum þegar Hilmir rak nefið upp í loft og þefaði eins og hundur. :haha:

Eftir ca 10 mín göngu þá heyrist í honum, ég vissi það, nefið mitt klikkar aldrei, mamma ég vissi það. Sjáðu vagninn er komin með súkkulaði jarðaberjunum, brenndum möndlunum og ég veit ekki hvað og hvað. Þetta setur rosa skemmtilegan svip á bæinn yfir jólamánuðinn, sem er nú reyndar ekki fyrr en í næsta mánuði. :$

En hér í kringum okkur er allt komið á fullt, allir bæklingar sem koma með helgarpóstinum eru stút fullir af jólaskrauti, jóladóti og síðast en ekki síst jólagjöfum. Og þá vandast nú málið, hvað á að gefa hverjum og einum, púfffff. Börnin í familíunni eru nánast búin, vantar smá í viðbót. Vantar smá í ömmu og afa pakka og svo auðvitað litlu prinsarnir okkar eru eftir. En þetta kemur allt saman, eins og alltaf :lol:

Erum að ákveða jólamatinn, mmmmmmmm jammmmííííí manni er farið að hlakka til að spisa bara :haha:


» 3 hafa sagt sína skoðun

08.11.2007 19:22:29 / Sigrún

Stóri prinsinn

Jæja prinsinn orðin átta ára, loksins.:D

Ekki það að hann hafi verið að bíða óþolinmóður eftir þessum degi, alls ekki enda rólegur drengur sem liggur aldrei neitt á.8)

Þetta er aldeilis búið að vera fínn dagur fyrir drenginn og er hann ekkert smá ángæður, og mjjöööööögggg þreyttur.
Hann vaknaði með bros á vör þegar við sungum fyrir hann afmælissönginn og auðvitað vissi hann vel hvað beið hans frammi. PAKKKKKAAAAR. :haha:

Pakkar frá Ísa afa, ömmu Elsu, afa Gunna og ömmu Ernu, Krístinu frænku, Erlingi og Birki Gunnari frændum, Ernu Júlíu frænku, bara gaman og svo auðvitað frá mömmu, pabba og Eið Orra lilla bró.

Eftir skóla þá var strákunum í bekknum boðið í afmælis veislu með öllu tilheyrandi og ómæ god, við erum gjörsamlega búin á því ÖLL fjögur, lætin sem voru, kræst ótrúlegt hvernig sum börn geta látið en svona er þetta bara þegar fjör er í gangi. En það var farið í  fullt af leikjum og borðað mikið

Hilmir var alla vega voða ánægður með þetta allt saman og það er fyrir öllu.;)

 
Elsku litli strákurinn okkar orðin átta ára, okkur finnst það nú alveg ótrúlegt. Okkur finnst svo stutt síðan hann kom í heiminn og hvað þá þegar við komumst að því að það var lítill leynifarþegi í farteskinu. Fysta barnið okkar, fyrsti strákurinn okkar, hann er bara yndislegur og æðislegur, erum ekkert smá ánægð með hann, er alveg flottastur.

Við vorum á skólafundi í gær, þar sem farið er yfir hans stöðu, hvernig hann er og hvernig honum gengur í skólanum og var honum bara hrósað, fram og til baka, æðislegastur


» 3 hafa sagt sína skoðun

07.11.2007 09:46:11 / Sigrún

37 ár

Ha ha nei ég er ekki 37 ára í dag en það kemur víst af því :lol:

Nei mamma og pabbi eiga 37 ára brúðkaups afmæli í dag, finnst það nú bara ekkert smá flott hjá þeim. Svona miðað við hvað fólk er endalaust að skilja í dag. En það sést langar leiðir hversu hamingjusöm þau eru miðað við þennan tíma sem sýnir bara að ástin og umhyggjan fyrir hvor öðru styrkist bara með árunum.

Til lykke mor og far, godt gået.

Fyrir nákvæmlega 8 árum var ég komin af stað með að fæða þeirra fyrsta barnabarn, sem ég var nú viss um að myndi fæðast þennann sama dag og þar af leiðandi myndi þau fá hann í afmælisgjöf.

En nei hann lét sko bíða eftir sér og kom ekki fyrr en daginn eftir og það um kvöldið, lét sko aldeilis bíða eftir sér. Verðandi ömmunni til mikilla ama þar sem hún gat ekki beðið eftir að fá að sjá hann og vitandi það að fyrsta dóttir hennar engdist um að kvölum við að koma barninu í heiminn. En prinsinn kom náttla fyrir rest, yndislegur og fallegur lítill drengur. Sem verður svo átta ára á morgun, mér finnst það nú alveg ótrúlegt, stóri gæinn minn. Eftir tvö ár verður hann tíu ára, cræst, man vel eftir því þegar ég varð 10 ára :lol: Gasssshhhh tíminn líður svo hratt.

Í dag er hann að sjálfsögðu ennþá fallegri en þegar hann fæddist yndislegur, ljúfur og góður strákur. En vitið þið hvað, ennþann daginn í dag lætur hann endalaust bíða eftir sér. :haha:


» 3 hafa sagt sína skoðun

16.10.2007 14:40:36 / Sigrún

One crazy lady :)

Oooooooo eins yndislegt að það getur verið að búa hér úti í baunalandi þá getur maður verið alveg jafn pirraður. Sérstaklega þegar manni vantar eitthvað ákveðið. :^)

Kom mér ótrúlega á óvart þegar við fluttum hingað, og gerir enn hvað danir eru árstíðubundnir. Það liggur við að maður fái ekki stuttbuxur í október og nóvember (ekki það að mig vanti stuttbuxur). En mig vantar t.d. almennilega inniskó á litla prinsinn, vill að hann fái góða sandala sem á að duga honum út veturinn, en nei nei ingen chance. Finn þá hvergi, ekki í skóbúðunum ekki í Salling sem er nú búð með allan fjandann, nóbs, það eina sem er til eru einvherjir mjúkir cars og spiderman skór, sem eru mjög hlíir þar sem gólfkuldi er í öllum húsum hér en þeir eru bara svooooo ljótir, meira að segja Eiður sagði neihei.

T.d. er mjög lítill séns að fá jarðaber á veturnar, kannski einhverjr “fínar” búðir séu með þau en ekki kaupmaðurinn á horninu, því jaðaberin er hot síson í ágúst. Svona er þetta hér, getur gert mig alveg crazy.

Annars er allt við það sama hjá okkur, skóli og aftur skóli. Elli fór til Germany í morgun með skólanum sínum, studietur. Ekki lítið slor það, verður bara gaman hjá honum, á meðan ég er heima með gæjana í VETRARFRÍI.

Ég er ekki svona heppin eins og hann, engir studieturar í mínum skóla, þá kannski :lol: á einhverja spítala en held það verði nú ekki. Er ekki í eins spennandi námi eins og Elli er í.:$

Gæjarnir litlu eru alltaf samir við sig, Hilmir ljúflingur og svo Eiður ofurskott, erum reyndar að byrja með hann í smá “meðferð” vegna gríðarlegs skapofsa. Kannski ekki alveg meðferð en erum að fá ráðgjöf frá þverfaglegu teymi frá leikskólanum, til að hjálpa okkur við að tækla þetta barn þegar hann lætur ekki eins og við viljum hafa hann.

En jæja of I go, er fara í klippingu, reyna að losna undan þessu crazinessi, sem er að pirra mig þessa dagana, með að fá smá ný:lol:


» 7 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 10
Dagsetning
12. mars 2010
Dagatal
mars - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031
FyrriNæsti